Ýmis námskeið/próf Endurmenntunarnámskeið fyrir enskukennara. University of York. 2016 Námskeið á vegum IPMA Advanced Courses í Intercultural Management Competence for Project Success 2011. Námskeið á vegum IPMA Advanced Courses í Coaching and facilitation as a lever for efficiency in projects í Hillerod 2011. Rauða kross námskeið í viðtalstækni og sálrænni skyndihjálp 2004. Stóðst fréttamannapróf RÚV í mars 2004. Dale Carnegie námskeið: Leiðtogaþjálfun og árangursrík samskipti haustið 2001.
Tölvur Framúrskarandi almenn þekking á tölvum og Office pakkanum tildæmis, auk þess að vera sérstaklega hæf í hönnun og uppsetningu á gagnvirkum kerfum. Hef unnið með mörg vefumsjónarkerfi og er því fljót að tileinka mér að vinna í nýjum umhverfum. Lærði á ýmis forrit og kerfi í náminu eins og CorelDraw, Adobe Photoshop, Illustrator and GoLive. HTML, XHTML og Macromedia (nú Adobe) Dreamweaver, Fireworks, Flash, Director - Apple's Final Cut Pro, Digidesign's Pro Tools auk JBuilder og Java. Mikið af þessu er orðið úrelt er ég hrædd um. Tungumál Tala ensku reiprennandi. Get lesið dönsku, sænsku og norsku allvel og stautað fram úr þýsku. Hef hinsvegar litla reynslu í að tala og skrifa þessi mál.
Félagsstörf Gjaldkeri og stjórnarmaður Edinborgarfélagsins 2010-2013. Formaður foreldrafélags Hlíðaskóla veturinn 2009-2010. Ég var bekkjarfulltrúi í Hlíðaskóla og í foreldrafélagi Sólhlíðar. Vefstjóri heimasíðu Athugasemdar (vefsíðu nemendafélags hagnýtrar fjölmiðlunar HÍ) 2002-3. Gjaldkeri FENs félags enskunema við HÍ 1997-1999. Gjaldkeri útskriftarhóps Fjölbrautaskólans við Ármúla vor '96. Ég hef tekið þátt í félagslífi alla mína skólagöngu og var meðal annars í nemendaráði í 8. bekk og formaður nemendaráðs í 9. bekk ('88-90).
Áhugamál
Hönnun og skipulag rýmis er eitthvað sem ég hef ávallt gaman af að skoða og fást við. Ég les mikið og fylgist með poppmenningu mun meira en klassískri. Ég stunda reglulega líkamsrækt og hugrækt. Aðhyllist heilbrigðan lífstíl. Að læra nýja hluti, hef auk þess setið ýmis konar námskeið í skapandi skrifum, andlegum þroska og þess háttar svo og setið námskeið í bólstrun og farið á námskeið fyrir stjúpmömmur.
Skrif Grein upp úr lokaverkefni mínu, The Status of Project Management within a City Hall of a European Capital, birtist í Procedia - Social and Behavioral SciencesVolume 74, 29 March 2013, Pages 305–315 Selected papers from the 26th IPMA (International Project Management Association), World Congress, Crete, Greece, 2012. Umfjöllun um námskeiðið Intercultural Management Competence for Project Success á vegum IPMA Advanced Courses birtist í Dansk Projektledelse í janúar 2012. Ég hef bloggað frá árinu 2002. Skrifaði eitthvað á Miðjuna (ekki lengur sú sama). Sat í ritstjórn Stúdentablaðsins (HÍ) veturinn 2003-4 og skrifaði þó nokkrar greinar fyrir blaðið. Fékk birtar greinar í Morgunblaðinu og DV-Magasin í tengslum við nám mitt í hagnýtri fjölmiðlun. Þá birtist grein eftir mig í bíóblaði (ekki langlífu) um Bridget Jones' Diary.