Janúar - námið hófst aftur mikið að gera og mikið stuð. Varði tíma fyrir norðan í Víðigerði og hélt ásamt félögum mínum í stjórn Edinborgarfélagsins mjög vel heppnað Burns Supper.
Febrúar - Skóli, skóli og meiri skóli og fór í helgarferð með þáverandi kærasta sem var ljúf en endaði engu að síður með því að við lukum sambandinu.
Mars - Sambandi lokið og önnur ferð til Danmerkur á námskeið á vegum IPMA í Hilleröd sem var hreint frábært og einnig sólarhringsheimsókn til Bryndísar í Halmstad í Svíþjóð. Knús á þig Bryndís.
Apríl - meiri skóli, páskar og gaman gaman. Og frökenin skellti sér í tannréttingar.
Maí - afmælismánuðurinn mikli og vorið hófst, grillað á svölunum og ferð til Austin, Texas bókuð.
Júní - ferð til Austin, Texas að heimsækja Bergmann hjónin, ótrúlega gaman, 38°C og niceheit í fyrirrúmi. Stoppaði í NY á leiðinni heim í nokkra klst. Ákvað að skella mér með Labbakútum á Laugaveginn í júlí. Móðurfjölskylduhittingur fyrir austan hjá Svövu og varði viku í faðmi ættingja fyrir norðan í framhaldi af föðurfjölskylduhitting á Hrísum, Eyjafirði. Heimsótti Júlla frænda í Hrísey (fyrsta sinn þar).
Júlí - sumarfrí á svölunum og mikið gaman með vinkonunum. Gekk Laugaveginn á fjórum dögum ásamt labbakútum borgarinnar.
Ágúst - vinna, vinna og meiri vinna. Hljóp 10km í Reykjavíkurmaraþoninu. Gekk yfir Fimmvörðuháls með labbakútum borgarinnar og byrjaði aftur í skólanum.
September - skóli, vinna, dóttirin varð 18 ára og flutti að heiman.
Október - skóli, vinna og nóg að gera eins og alltaf.
Nóvember - fór til Mílanó á IMPA námskeið og vá æðisleg ferð. Vinna, skóli og næsheit áfram.
Desember - vinna, skóli, Mía át teygju (ekkert nýtt svo sem ) og í þetta sinn sat hún föst og þurfti í uppskurð. Óðinn vex og vex, allir stóðu sig vel í skólanum og ég með 8,5 í meðaleinkunn. Jólin góð og 2012 framundan.