Deja Vu
Submitted by khh on 5 September, 2005 - 21:55
Var ég búin að nefna það að Patrick Dempsey er ótrúlega flottur í Gray's Anatomy?
Hmmm, er það eitthvað augljóst að ég er búin að vera "single" of lengi :)
Ekki það, skoskir karlmenn eru ekki beinlínis ómyndarlegir.
Meðan ég man, ég fór í Ikea í dag (eru fréttir fyrir nokkra). Keypti helling fyrir 112 pund (x114), stóðst ekki mátið og fór inn á Ikea.is og reiknaði saman hvað ég hefði borgað fyrir sömu vöru heima. Rétt um 21.000 kr. takk.
Annars nenni ég ekki að hanga í því endalaust að reikna og umreikna og vesenast, geri það bara meðan ég er að átta mig á verðlaginu hér.
Rúmið kallar!!

