afmælishrina

Já hún er hafin, reyndar fyrir nokkru síðan, en það er ótrúlegur fjöldi af meyjum í lífi mínu og okkar. Þetta byrjaði með því að Hjalti, barnsfaðir minn, átti afmæli 27. ágúst (reyndar þekki ég eina sem á afmæli 26. ágúst en við erum ekki í miklu sambandi), 31. ágúst varð svo fyrrum tengdamóðir mín 60 ára, 1. sept varð stjúpbróðir Unnar 16 ára, í gær átti Þórhalla nýja vinkonan okkar í Skotlandi afmæli og varð hún 6 ára, ég þekki tvær manneskjur sem eiga afmæli á morgun, mamma á afmæli 9. september, Unnur á afmæli 11. september (og bekkjarsystir hennar heima), held að ég muni það rétt að bróðir hennar mömmu eigi afmæli 13. september, Elfur vinkona 15. september, Kolla Holtó (gömul vinkona) á afmæli 20. sept og Rakel síðan 26. sept (en þá erum við komin yfir í Vogarmerkið).
Svo eru nokkrir af uppáhalds leikurunum mínum líka meyjur, sumsé Keanu Reaves 2. sept, Hugh Grant og Goran Visnjic 9. sept, Colin Firth 10. sept etc. Jæja. Er nú bara að rausa eitthvað held ég.

Share this