Fullorðin eða barn?
Þá er dóttirin orðin 12 ára sem þýðir að skyndilega er hún farin að þurfa að greiða fullorðinsfargjöld - allavega á Íslandi hjá Icelandair og Austurleiðum (Iceland Express er með 14 ára(voru með greinilega er núna 12 ára). Hér í Skotlandi hafa menn manndóm í sér og líta svo á að börn séu börn meðan að þau eru skólaskyld eða til 15 ára aldurs! Þá er sama hvort um ræðir strætó, lest, eða flugvél.

