Skólastúlkan Kolbrún
Mætti í skólann í dag á sérstakar kynningar sem School of Computing bauð International Students uppá. Þær verða áframhaldandi á morgun og hinn. Ég er búin að skrá mig í skólann og komin með Matriculation card.
Það er greinilegt að enn vantar marga til landsins auk þess sem okkur var sagt af því að fleiri ættu eftir að koma. Af þeim sem mættir voru í dag vorum við aðeins fimm sem vorum ekki frá Kína :) Einn var frá Brasilíu, annar frá Morokkó (talaði mest við þá) og svo voru tveir frá Indlandi. Enginn af þessum verða með mér í prógrammi. Það er nýtt í Napier að tala um Programmes í staðinn fyrir Degrees. Það er líka nýtt fyrir mig að vera í námi þar sem karlmenn eru í meirihluta :)
En í næstu viku verða vonandi fleiri mættir og þá hitti ég þá sem verða með mér í náminu.

