Blair Drummond
Krakkarnir eru í fjögurra daga fríi núna og til að brjóta upp fríið þá skelltum við okkur í Blair Drummond Safari-Park í gær. Við röltum ásamt Guðrúnu, Kára og Þórhöllu niður á Haymarket lestarstöðina eldsnemma og tókum lestina til Stirling klukkan 9.30. Klukkutíma seinna vorum við komin til Stirling og fundum rútu/strætóstöðina þar og tókum strætó í Blair Drummond. Þar hittum við einnig aðra íslenska fjölskyldu sem býr í Edinborg en þau eiga bíl. Það var margt skemmtilegt að sjá. Allskonar dýr auðvitað, bæði villt og líka húsdýr og við sáum sæljóna-show, svín sem hraut, lamadýr og margt margt fleira. (ég á að segja hér frá Óðni að strætóskýlið sem við fórum í var út í sveit) Það voru líka allskonar leiktæki og hægt var að fara í hjólabáta og svo fórum við líka í bátsferð að skoða "chimp island" en þar búa fjórir simpansar yfir sumartímann. Það var ferlega skemmtilegt að sjá þá. Við höfðum ætlað okkur að skoða Stirling eitthvað en þegar við komum til baka þangað um klukkan 18.00 þá vorum við svo búin á því og lestin til Edinborgar var akkúrat að koma svo við drifum okkur bara og fórum svo út að borða á Bar Italia á Lothian Road sem er hérna rétt hjá okkur. Við verðum bara að fara seinna að skoða Stirling :)
Heimþráin hefur verið að hrella heimasætuna ansi mikið. Henni leiðist í skólanum en virðist merkilegt nokk una sér heima við - enda nóg að glápa á og lesa svo sem. Ég vona að það gangi yfir, það er heimþráin og að skólaleiðinn. Ég og Óðinn erum nú ekki alveg laus við heimþrána heldur en Óðinn virðist ánægður í skólanum og ég er bara spennt að byrja í mínum. En það er náttúrulega ekki auðvelt að skipta algerlega um umhverfi og við bjuggumst ekki við því heldur. Annars hefum mér fundist á Unni að henni gangi bara ágætlega í skólanum og að henni finnist hann bara alveg ágætur svona oftast nær. Hún var meira að segja svo dugleg á föstudaginn að hún fékk verðlaun í frönsku fyrir að vita hvað eitthvað orð þýddi. Verðlaunin voru SÚKKULAÐI!! Þetta sýnir að hún er allavega að taka þátt í skólastarfinu en situr ekki bara út í horni og þegir :) Hún er náttúrulega rosa dugleg, alger hetja.

