Yummy Mummy Week

Sniðugt concept - undirlínan er "because every mum needs some fun". Þetta er í góðgerðarskyni. Mömmur hittast í morgunkaffi, spjalla og skilja eftir aur sem fer til barna með krabbamein. Mér var boðíð í svona kaffiboð í morgun. Mjög notalegt.

Annað er það helst að frétta að ég hætti mér á hárgreiðslustofu í gær, J2, og fékk rótarlitun og klippingu. Er bara ágætlega ánægð. Mér fannst hárið á mér vera orðið einum of dökkt svo við hárgreiðslustúlkan ákváðum að setja aðeins ljósari lit í rótina og lítið út í hárið. Klippa það vel stutt og reyna að lýsa mig smám saman. Hárið er doldið stutt en hinsvegar vex hárið á mér svo hratt að það verður orðið fínt eftir tvær vikur án þess að þurfa aðra klippingu fyrr en um jólin. Nema ég haldi áfram að klippa úr litinn.

Svo fór ég í bankann. Ég var svo ferlega ánægð fyrir tveimur vikum þegar þeir samþykktu loksins öll gögn sem ég lét þá fá og mér var sagt að ég fengi svo sent bréf eftir 1-2 vikur. Tvær vikur liðu og ég heyrði ekki neitt svo ég rölti inn í útibúið í gær og úps, þeir bara fundu engin gögn um mig. Stúlkan sem tók við umsókninni og tók afritin af gögnunum mínum var ekki við og þeir voru ægilega miður sín. Sem betur fer var ég í mun betra andlegu jafnvægi en um daginn þegar ég fór hálfskælandi út úr bankaútibúinu og gat sagt að mér fyndist þetta algerlega óásættanlegt og var bara helvíti kúl á því. Ætlast til þess að fá reikning opnaðan í dag.

Nú eru jólaauglýsingarnar komnar í sjónvarpið líka !!!!!!!!!! væri kannski meira viðeigandi ef ég væri í snjónum heima í stað góða veðursins hér. Það er reyndar haustlegt um að litast, vindur og rigning en ofsalega hlýtt (16°) og sólin glennir sig inn á milli.

Ég fór í meiri "induction" í gær í skólanum. Hitti þónokkuð af tilvonandi samnemendum mínum og það var blað látið ganga um stofuna sem fólk átti að skrá nafn sitt og fleiri upplýsingar á og þá sá ég íslenskt nafn. Ingi Helgason. Svo ég fór að svipast um eftir íslenska stráknum en fann ekki á þeim stað sem hann ætti að vera miðað við hvar nafnið var í röðinni. Bara konur þar. Svo heyrði ég seinna í tímanum að ein konan var kynnt sem Ingi svo mér datt í hug að kannski væri hún bara frá öðru Skandinavíu landi. Svoooooo var ég fyrir utan skólann hans Óðins seinna um daginn og þá sá ég hana þar og ákvað að spjalla aðeins við hana og þá kom í ljós að hún er fædd og uppalin í Edinborg en foreldrar hennar eru íslenskir. Raunverulegt nafn hennar er Ingibjörg en það var stytt í Ingi þegar hún var yngri. Sniðugt. Hún talar eiginlega enga íslensku en skilur hana eitthvað.

Óðinn er að flytja inn til mín. Unnur er alveg að koksa á að deila herbergi með honum (skiljanlega) en henni líður mun betur í þessu herbergi sem ég var í fyrst og mér líður mikið betur í herberginu sem átti að vera hennar. Reyndar passar heimsins flottasta rúm ekki almennilega inn hjá okkur svo hann fær að kúra eitthvað upp í til að byrja með. Ég ætla að reyna að selja rúmið aftur og kaupa þá bara rúm sem fer minna fyrir handa honum. Það er alveg nóg pláss hjá okkur þannig en vandamálið er að það eru skápar, gluggi, hillur eða ofn á öllum veggjum sem veldur því að stóra fína rúmið kemst hvergi fyrir án þess að blokka eitthvað annað.

En það verður vonandi meiri friður í húsinu þegar þau verða búin að skipta :)

Nú eru bara 20 dagar í að krakkarnir fari heim og í að Edda Lára komi í heimsókn. Það er eina heimsóknin sem er bókuð til mín þar til í febrúar en þá koma Dagga og strákarnir ef allt gengur eftir. Krakkarnir mínir fara í vetrarfrí nefnilega bara mánuði eftir að við komum heim úr jólafrí og þá vantar einhvern til að vera hjá þeim meðan ég er í skólanum - alveg tilvalið að fá þau í heimsókn þá.

Ég vona auðvitað að aðrir sjái sér fært að koma í heimsókn - pundið er sérlega hagstætt akkúrat núna :) Væri kannski ekki vitlaust að versla slatta af pundum til að geyma þar til seinna.

Share this