JIbbí.
Þá er ég búin að fá lokagreiðsluna og Dagga skrifaði undir afsalið fyrir mig í dag. Þvílíkur léttir að vera loksins laus :)
JIBBÍ
Ég mætti í fyrsta tíma í Java Programming í dag (formlegur titill er Software Development I) og sem betur fer er kennarinn skemmtilegur :) Nei nei, ég er ekkert hrædd. Ég ætla að tækla þetta eins og algebruna hér forðum. Í upphafi var ég hrædd og þá gekk illa en þegar ég losaði mig við óttann þá fékk ég 9. Semsagt ÉG ELSKA JAVA!
Mætti líka í Interactive Systems Design í morgun og því miður er kennarinn ekki alveg með kennslufræðina á hreinu, wink wink, hún stóð við hornið á töflunni allan tíma og horfði á PP-showið meðan hún talaði. Það er snéri ekki að nemendum og þar af leiðandi var oft erfitt að heyra í henni. En efnið er áhugavert. Ég er búin að mæta í Web Page Development og þar kannaðist ég við mig að einhverju leyti var bara basic xhtml og ég er aðeins inn í því. En á morgun er svo Digital media og maður má víst byrja að leggja sig allan fram alveg um leið. Við þurfum að ná góðum tökum á allavega sex forritum ef ekki fleirum sem hafa með hljóð, myndvinnslu og teikningu að gera. En þetta er bara spennandi.
Er að kynnast liðinu og við erum áhugaverð blanda með allskonar bakgrunn. Frá ýmsum löndum og með allskonar menntun.
Verð að fara og elda oní brjálæðingana mína litlu. Það er allt að verða vitlaust í kringum mig.

