Bureaucracy
Byrjum á þessu jákvæða :) það er sól og 16 stiga hiti úti og það er molla og það er 30. september.
Vá ég er búin að vera hérna í rúmlega 2 mánuði.
Nú ætla ég að kvarta...
1. Bankinn. Djísus, það var búið að vara mig við en ómg. Sko þetta byrjað náttúrulega allt með því að ég var send fram og aftur til þess að redda allskonar gögnum sem svo voru ekki nógu góð og þurfti að laga og eitthvað svona kjaftæði en á endanum gat ég loks skilað inn umsókn og hún týndist. Fannst svo síðan á mánudaginn og mér var sagt að reikningur yrði stofnaður þann dag og ég fengi bara sendar upplýsingar um reikninginn því ég var eitthvað upptekin í skólanum og gat ekki tekið símann. Mér svo sem lá ekki á því ég fékk ekki peninganan mína fyrr en á miðv.dag og hugsaði að þá yrði pósturinn kominn í síðasta lagi. Ég fékk ekkert bréf frá bankanum fyrr en í gær og þá bara Cashline kort en engar upplýsingar um reikninginn og ég þarf að fylla út eitthvað sérstakt form og skila inn í bankann til þess að ég geti svo notað kortið. Ég þarf semsagt að labba mér í útibúið á eftir og brosa breitt og ganga endanlega frá þessu.
2. Skólinn hennar Unnar. Þannig er mál með vexti að Unnur er búin að hlakka mikið til í langan tíma til þess að krakkarnir eiga að fá eitthvað svona Young Scot ID/Smart Card eftir haustfrí sem veitir þeim afslátt í búðum og allskonar. Nema vandamálið var að einhverra hluta vegna var hún aldrei búin að fá formið sem átti að fylla út og var búin að reyna að spyrjast fyrir um það en fékk einhvern vegin engin svör. Svo var það í gær að hún ásamt annarri sem var í sömu aðstöðu fóru á skrifstofuna til að fá upplýsingar og fengu þar bara vondar móttökur og því var hreytt í þær að þetta væri margbúið að tilkynna og að þær hefðu misst af myndatökunum fyrir kortið og þær myndu bara ekki fá afsláttarkortið. Og svo voru þær látnar fá umslög með nöfnum annarra á og þær sendar í burtu. Unnur sagði mér þetta alveg miður sín í morgun. Í þessu umslagi var bréf til forráðamanna ásamt þessu formi sem átti að fylla út og skila í síðasta lagi fyrir 2. september og þar voru upplýsingar um myndatökur og slíkt. Svo ég hringdi auðvitað í skólann. Og svörin sem ég fékk voru að það væri búið að margtilkynna þetta og ég reyndi að útskýra að barnið væri nýtt í landinu og skildi ekki alveg allt. OG (mjög stórt og) við fengum til að byrja með aldrei þetta bréf með þessum upplýsingum!!!!!!!!!!!! En það var lítill vilji til að ræða málin svo ég þarf að mæta þarna á eftir með formið og halda stillingu en vera ákveðin og kúl. Hvað er eiginlega að fólki? Unnur er margbúin að spyrjast fyrir um þetta í skólanum án þess að fá svör.
Aftur í góðu fréttirnir. Óðinn fór í after-school-club bæði í gær og fyrradag og fannst svo gaman að hann vill fara alla daga. Ætla að sjá til með það eftir haustfrí. Ég þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af honum held ég. Hann er að fíla þetta mjög vel allt saman.

