komin og farin
Jæja, þá er Edda Lára komin og farin. Við tættum og trylltum í búðunum og fórum út að borða í hádeginu og kvöldin - þvílík dýrð og dásemd. Á fimmtudeginum borðuðum við á Bar Roma sem er við endann á Princes Street vestan meginn. Það var mjög fínn matur. Í hádeginu á föstudaginn fórum við á Valvona og Crolla sem er ítalskt deli og var búið að mæla með við mig - það var æðislegt og við E.L. sammála um að þetta var besta Capochino sem við höfum fengið á ævinni held ég bara. Um kvöldið borðuðum við á The Bombay Bicycle Club sem var soldið fyndin upplifun. Maturinn var góður en þjónarnir skrýtnir. Þeir voru eitthvað að rífast um það hvað við fengum að borða og það var svolitið fyndið. Við fórum svo í hádeginu í gær á stað hérna rétt hjá mér líka sem heitir Thaisanuk og maturinn var yndislega góður. Fer pottþétt þangað aftur. Svo enduðum við á stað í gærkvöldi sem heitir Metro eða eitthvað slíkt á Grassmarket. Fórum þangað því við ætluðum að skoða Real Mary King's Close sem er upp á Royal Mile - mæli ekki með þeim stað. Maturinn var allt í lagi en ekki mikið meira. Ég náði að versla talsvert af fötum í gær (voða gaman) hef ekkert keypt mér síðan við komum hingað út, bara keypt á krakkana. Þetta var yndislegt. Náttúrulega alltof stuttur tími en ég hlakka bara til að fá fleiri gesti. Held að E.L. geti alveg mælt með herberginu hennar Unnar og rúminu (sem er 1.40) allavega virtist hún ná að hvíla sig voða vel.
EN nú er eins gott að spýta í lófana og takast á við lærdóminn. Njóta þess að krakkarnir eru ekki hér og leggja 130% í að læra.

