Back to normal

Og okkur líður öllum mikið betur. Held að það sé bara fullkomlega eðlilegt að eitthvað gefi sig inn á milli þegar álagið er jafn mikið og það hefur verið á okkur síðasliðna mánuði. EN eins og ég sagði við erum bara mjög sátt og Unnur og ég áttum gott spjall (það er ég röflaði eitthvað viskulegt og mömmulegt sem svæfði hana og hún brosti og var greinilega búin að jafna sig) áðan. Við ætlum að gera þessa dvöl okkar hér eins ánægjulega og reynsluríka og við mögulega getum. Við erum sammála um það. Og við megum fá heimþrá og skæla stundum líka :-) það er fullkomlega eðlilegt. Takk fyrir knúsin.

Ó og mér hlotnuðust tvær ljósmyndir í dag, kennarinn minn í Digital media (afskaplega viðkunnalegur gaur og skilningsríkur en bara kann ekki að klæða sig) gaf okkur fullt af ljósmyndum eftir sig. Ég fékk eina af Jesú "I need Jesus in my life", sagði ég við hann alveg að niðurlotum komin í dag. Og aðra af plastboxum röðuðum eins og kross með skordýradóti í og tarantúlu á. Mjög spes. Er að tala um A3 stærð af myndum set þær hérna inn.

Var ég búin að segja að pabbi minn kemur í heimsókn eftir tvær vikur!? Það verður gaman.

Share this