Veturinn er kominn - winter wonderland
Jebb og með kulda í farteskinu... Ég er mjög ánægð með kuldann, þannig, íbúðin helst hlý ennþá en við röltum okkur samt í bæinn í dag og keyptum náttföt handa öllum í fjölskyldunni. En fyndna er að allir eru alltaf að segja við mig að ég hljóti nú að vera vön svona kulda fyrst ég er frá Íslandi. Og annað fyndið er að ég hélt að Íslendingar einir væru færir um að gera grín að því að ég hafi verið eða sé kölluð Kollý. Ég var semsagt spurð í skólanum í gær hvort ég væri aldrei kölluð annað en Kolbrún og ég sagði frá Kollýjar nafninu, og það var ein sem snéri sér strax við og sagði: "oh, heh,heh, like the dog!!." Kræst og ég hélt ég myndi losna við þetta hér.
Java prófið gekk ágætlega, svona miðað við allt, ég gerði mitt besta - verður spennandi að sjá hver útkoman verður, annars gekk fólki almennt ekkert rosalega vel.

