Update

Jæja.

Eftir þrjá sólarhringa verð ég komin Íslands. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er svona lengi fjarverandi frá hinu ástkæra heimalandi mínu síðan árið 1991 er ég dvaldi í Regina, Saskathewan, Canada. Ég var þar í fimm og hálfan mánuð og er núna búin að vera hér í rétt tæplega fimm mánuði. Það gengur yfirleitt vel. Ég átti erfiðar tvær vikur sem ég virðist vera búin að ná mér af. Það byrjaði á að ég fékk vefjargigtarkast (það versta í 2 ár) og missti svefn. Þegar ég verð þreytt (eins og allir) þá missi ég alla einbeitingu svo ég átti erfitt með að læra. Þá varð ég stressuð og kvíðin og gat ekki sofið og varð þá meira stressuð. Festist í "loop" eða svona Catch 22. Ahh við köllum þetta vítahring á íslensku :) Ég held að það sé gott að fólk (þið sem lesið þetta) viti að þetta er ekki bara dans á rósum, það er bara alveg skrambi erfitt á stundum en sem betur fer er ég umkringd dásamlegu fólki hérna bæði í skólanum og hverfinu.

Ég er auðvitað stolt af sjálfri mér og krökkunum. Það má ekki gleyma því hvað þau eru ofboðslega dugleg.
Óðinn er orðinn doldið sleipur í enskunni og Unnur leiðréttir mig reglulega :) ég er auðvitað ekki með fullkomin framburð og langt frá því að vera alveg fluent þó ég sé skrambi góð auðvitað. En það var hluti af þessu ævintýri - að ná upp meira valdi á talaðri ensku fyrir mig líka. Veit samt stundum ekki hvaða hreim ég tala með, veð úr skoskum í breskan í amerískan og pikka svo bara upp hreiminn hjá þeim sem ég er að tala við hverju sinni. Hef alltaf verið svolítið þannig.

Ég er spennt yfir öllum verkefnunum í skólanum. Mér finnst ofboðslega gaman að vera að læra það sem ég er að læra þó að ég fái stundum köst og hati Java og svona. Það er á sama tíma ótrúlega fullnægjandi að vera að öðlast þessa færni og þurfa að hafa dálítið fyrir því. Ég er æst að vinna öll mín verkefni vel núna því það er margt spennandi framundan eftir áramót. Önn tvö byrjar hinsvegar ekki hjá mér fyrr en í byrjun febrúar og ég er því á fullu í verkefnavinnu og próflestri út janúar. Þó eru flest skil hjá mér strax vikuna sem ég kem til baka - sem olli þessum ofboðslega kvíða sem ég fann fyrir um daginn.

Eitt að lokum - það má aldrei gleymast að góður nætursvefn er svo sannarlega LÍFSGÆÐI

ps. ég lendi mjög seint þann 21. desember eða rétt um 23.00 ef allt gengur upp. Ég bý hjá mömmu meðan ég er á Íslandi og mun nota sama GSM númer og ég var með áður en ég fór.

Share this