ei ókei

allt gott að frétta af okkur hér - krakkarnir eru búnir að eiga stórgott félagslíf síðustu viku. Óðinn fékk vin sinn í heimsókn á laugardaginn var og fór síðan og heimsótti hann á sunnudeginum. Unnur fór á laugardeginum með Tótu (14) og Antoni (12) og mömmu þeirra í Edinburgh Dungeons og skemmti sér stórvel og endaði með að gista hjá þeim. Þau fóru svo í bíó í gær og núna eru þau í heimsókn hjá okkur. Alveg frábært.
Ég er búin að vera alveg upp fyrir haus í verkefnavinnu síðan ég kom út aftur. Og mér finnst þetta svooooo skemmtilegt. Hlakka til að halda áfram og fara svo að vinna við þetta og ég finn að mig langar alveg rosalega mikið að kenna öðrum að gera það sem ég er búin að læra að gera :).

en ég á enn viku eftir í verkefnum og prófum. Svo að næsta laugardag verður allsherjarhreingerning hér !!! Það er orðið alveg hrikalega skítugt hérna :)

Share this