Singing in the Rain, Raindrops keep falling on my head, It's a rainy night in Georgia...
og fleiri lög koma upp í hugann þegar að rignir úti... það kemur líka upp í hugann It's raining men en það er bara óskhyggja :) heh.
Það er í nógu að snúast þegar líður að lokum vorannar. Innan við tvær vikur eftir í kennslu í framhaldskólanum og yfirferð verkefna í háskólanum er á fullu. Veit ekki hvenær sér fyrir endann á því en geri ráð fyrir því að hafa lokið við að skila af mér öllu í kringum 20. maí. Mér finnst skrýtin tilhugsun að hætta að vinna því þetta eru vinnustaðir sem ég er ekki að snúa aftur til, allavega ekki í bráð. Ég hef svo sannarlega fundið mig í starfi og hef sett mér það markmið að dýpka þekkingu mína enn frekar á sviði kennslufræði og ætla að nýta margmiðlunarnámið úti algjörlega í kennslufræðilegum tilgangi. Það er frábær tilfinning að upplifa það að vera komin á rétta hillu. Ekki það að ekkert af því sem ég hef lagt stund á hingað til hefur verið röng hilla - þetta tengist allt með einum eða öðrum hætti.
Ég var heima við að degi til á miðvikudaginn, við Óðinn vorum veik. Ég var að flakka á milli stöðva á fjölvarpinu og rakst á MGM en þar var verið að sýna snilldarmyndina Caveman. Ég var alveg búin að gleyma þessari mynd. Í henni leika Ringo Starr, Barbara Bach, Dennis Quaid og Shelley Long. Myndin er náttúrulega alveg yndislega hallærisleg en það var örugglega tilgangurinn með henni í upphafi. Við Óðin höfðum allavega gaman af, hann sér í lagi þegar hann sá GRAMEÐLUNA!!!! og ég yfir einlægum áhuga hans og atriðinu með eggi flugeðlunnar. Svo er tónlistaratriðið líka þrælgott, þegar þau sitja í kringum eldinn og slá á ýmislegt.
Þetta var skemmtilegt ferðalag aftur til '81-2.
Ég hafði nú heldur betur ætlað mér að kíkja á þessa kvikmyndahátíð sem stendur yfir þessa dagana en hef enn ekki komist. Vonandi kemst ég eitthvað næstu helgi. Hef ekki ákveðið hvað mig langar að sjá en ábendingar eru vel þegnar.

