Hey'all
Þá eru krakkarnir farnir til Íslands og ég ein í kotinu. Ég verð að viðurkenna að hafa fundið til nokkurrar tilfinningasemi yfir þessi öllu saman. Það er skrýtið að litla stelpan mín ætlar ekki að koma hingað aftur til mín. En ég kem heim 20. apríl að sækja Óðin og vonandi næ ég að sjá sem flesta - er að hugsa um fara á eitthvað kaffihús á föstudagskvöldinu og benda fólki á að hitta mig þar ef það hefur áhuga. Veit ekki hvað væri sniðugt samt. Ég og Óðinn höldum svo út aftur á sunnudagsmorgninum 23. apríl til að klára dæmið.
Það er alltaf nóg að gera og ég er að setja upp stundaskrá fyrir mig til að klára öll mín verkefni fyrir skiladaga sem eru 11. og 18. maí og svo tek ég próf í síðustu tveimur vikunum í maí líka. Eins hef ég um margt að hugsa varðandi framtíðina. Ég þarf að skipuleggja "dissertation" og hvernig ég ætla að fara að þessu. Mig hefði gjarna langað að vera hér lengur en það er flókið að hugsa um það þar sem að ég á börnin mín ekki ein og Unnur er nú þegar farin og ég veit ekki hvað Jónas myndi segja ef ég óskaði eftir að hafa Óðin hér lengur. Óðinn er reyndar ofboðslega ánægður hérna og vill bara vera með mömmu sinni en auðvitað elskar hann að vera með pabba sínum líka. Ég fer náttúrulega ekki að vera hér bara til að vera hér en ef mér býðst gott tækifæri þá mun ég svo sannarlega skoða það. Annars er ég byrjuð að kynna mér íbúðar- og vinnumál heima líka og reikna með að þetta komist allt á hreint fyrir lok annar. Ég stefni á að taka lokaritgerðina/verkefnið í full-time og á lánum sem þýðir að ég verð hér að mestu út sumarið. Ég er með íbúðina út júní og það er nóg pláss núna þar sem við Óðinn erum bara tvö ein svo ef einhvern langar að kíkja á borgina þá er hér hægt að fá billega gistingu :)
Það er þokkalega vorlegt um að litast hér í Edinborg í dag. Ég fór ásamt Erin vinkonu yfir á Nicolson Street í dag og við fengum okkur kaffi og með því og löbbuðum svo sem leið lá niður á Royal Mile og upp hana og svo yfir George IV bridge og yfir Meadows og heim. Yndislegur dagur. Ég keypti mér nýja svarta pasmínu (sorrý Dísa týndi þessari frá þér í jan á leiðinni hingað út aftur) og rauðan klút líka - ægilega sumarleg. Ég borgaði alveg heil 5 pund fyrir þetta.
Það á samt að vera fremur kalt hérna næstu daga það er upp að 10 stigum á daginn en nálægt frostmarki á kvöldin jafnvel niður fyrir frostmark en svo á að hlýna aftur og vonandi helst sæmilega hlýtt það sem eftir er eða allavega fram á næsta haust!
Jæja ég er að hugsa um að fara í næs bað! Talk to me people! Væri gaman að hafa hugmynd um það hverjir eru að kíkja hérna inn...aðrir en klámhundar sem "spamma" commentakerfið mitt í gríð og erg... er komin með filter á núna svo ég verð að samþykkja kommentin áður en þau birtast.

