Ísland, fagra Ísland
Submitted by khh on 19 April, 2006 - 23:18
Jæja, ég verð á landinu þangað til aðfararnótt sunnudags og með gemsann 821-9984 - lendi um hádegi á morgun (fimmtudag).
Planið er að fara á eitthvað næs kaffihús á föstudagskvöldið og vona að þeir sem vilja hitta mig sjái sér fært að mæta - ég verð svo rosa stutt. Á eitthvað erfitt með að ákveða mig samt með stað þar sem að það er svo langt síðan ég hef verið heima. Pæling með Café Paris ef búið er að opna eftir breytingar eða Thorvaldsen hef samt alltaf verið meiri Laugarvegsrotta :)
Sendi text á föstudaginn þegar ég verð búin að ákveða mig og/eða set uppl. hér inn.

