update
Heimferðin heppnaðist nánast að öllu leyti vel. Náði að hitta lygilega mikið af fólki og átti góðar stundir. Það var að sjálfsögðu erfitt að skilja við perluna mína hana Unni en við Óðinn vorum ánægð að koma heim. Eins og Óðinn sagði þegar við gengum inn í íbúðina, æ hvað er gott að vera komin heim á skoska heimilið mitt. Æ hann er svo mikil dúlla.
Veðrið leikur við okkur. Hér er heldur betur vor í lofti og Óðinn fór hæstánægður í skólann í dag bara á peysunni. Og ég er svei mér þá farin að fá örlítinn lit í kinnarnar. Framundan er Bank Holiday helgi sem þýðir frí á mánudaginn og við Óðinn stefnum á að skreppa eitthvað útfyrir borgina með vinafólki okkar sem býr niður í Manchester eða þar nálægt.
Ég má náttúrulega varla vera að því að vera neitt lengi í burtu. Ég hef alveg nóg að gera í verkefnavinnu á næstunni. Nú er réttur mánuður eftir af þessarri önn og ég verð að halda mér nokkuð vel við verkið. Ég er annars búin að fá feedback við tveimur verkefnum og er ekki nema frábært um það að segja. Auk þess mætti ég á lokaverkefnisfund á þriðjudaginn og er allt mun skýrara varðandi þá vinnu. Ég stefni á að taka námið í fullu námi og er þá skiladagur 29. september, vita í október einhverntíma geri ég ráð fyrir og svo útskrift í nóvember.
Annars var ægilegt stuð hér um páskana þegar Edda Lára og fjölskyldu hertóku heimilið. Þau voru yndislegir gestir. Helgina áður fór ég til York og Harrogate sem var mjög skemmtilegt. Í York er Jórvíkur safnið sem er uppgrafinn víkingabær sem við skoðuðum og við sátum í svona vögnum sem færðu okkur í gegnum safnið þar sem ekki þykir æskilegt að leyfa fólki að valsa um svona fornleifauppgröft - eðlilega. Það var merkileg upplifun þar sem að gert var í því að gera upplifunina sem "raunverulegasta" og voru hjóð og lykt notuð til þess meðal annars. Þegar farið var með okkur í gegnum markaðsstrætið mátti heyra köll og samræður og skýrt heyrðist kona kalla "komiði strákar". Old norse er sama og íslenska semsagt í Jórvík :)
En já. þýðir ekki að blogga bara, ég verð að gera eitthvað.

