countdown
Jæja, nú er þessari önn að ljúka. Próf á morgun í Future media, og á föstudaginn er Personal, Home and Ubiquoitous Technologies próf. Ég þarf reyndar að sitja resit í Java á fimmtudaginn þar sem ég ásamt næstum öllum hinum í kúrsinum gat ekki klárað verkefnið á réttum tíma. Mig vantar reyndar eiginlega bara eina funktjón upp á að geta skilað og náð örugglega en þessi funktjón vefst ægilega fyrir mér. Og er þessvegna hrædd um að ná því ekki þar sem ég er eins og áður sagði í tveimur prófum líka sitt hvoru megin við resittið auk þess að hafa náð mér í hálsbólgu frá helv... á laugardaginn og er enn hundslöpp. Ég get varla talað sem er kannski bara gott hehe. Þar sem ég sé ekki fram á að ná að ljúka lokaverkefninu í september heldur - þá er kannski bara spurning að sitja þetta Java í sumar. Ég var víst helst til bjartsýn að halda að ég gæti klárað... en kennararnir hérna segja mér að það sé mjög erfitt að ná því vegna sumarfría kennara og þess háttar. Ég er kannski búin að röfla þetta allt áður hérna inni en ég veit ekki hversu mikið ég er að skrifa þetta fyrir aðra en mig þar sem feedback er í svo litlu magni.
Ég er semsagt búin að setja mér 6 mánaða markmið og er stefnan því að:
búa hér fram að jólum...
vinna ritgerðina part time og skila í janúar skilum í stað september...
ná upp heilsunni. ég er búin að vera í greiningu hjá næringarsérfræðingi og ég er víst búin að gangi ansi nærri mér síðustu árin með álagi og spennu og þarf að einbeita mér að því að bæta efnaskiptin í líkamanum og byggja upp vítamín og steinefna forðann að auki, þar sem að líkami minn er ekki að fúnkera eins og hann á að gera...
fara til Flórens í júlí, búin að kaupa miðann...
skipta um íbúð í lok júní byrjun júlí...
kenna upplýsingatækni í skólastarfi við HÍ næsta vetur í fjarkennslu héðan...
koma til Íslands í heimsókn í október...
taka á móti gestum ef einhverjir vilja koma ...
lesa, lesa og lesa meira...

