Ég trúi...

að ef ég vil eitthvað nógu heitt að þá gerist það... hingað til hef ég ekki verið tilbúin að vilja neitt (skiljist ákveðna hluti) nógu heitt og þar af leiðandi ekki fengið... einhversstaðar segir að góðir hlutir berist þeim sem bíða, ég held að góðir hlutir gerist ef maður vill þá nógu heitt og áttar sig á því þegar tækifærið býðst og er með nógu mikla meðvitund til að segja já takk en ekki hmmm, best að hugsa málið :) eins og ég geri svo ægilega oft... svo er ég svo lengi að hugsa mig um að þegar ég hef loksins tekið ákvörðun þá hef ég misst af tækifærinum... en eníhú til að gefa ykkur tóninn þá er núna glampandi sól, 22 gráður, opnir gluggar og Nina Simone á fóninum, ég ætla að halda áfram að taka til...

Share this