Edinborgarfestivalið hafið
Hið margfræga Edinborgarfestival hófst formlega í dag þó að ýmislegt sé búið að vera að gerast síðustu viku að auki. Enda mörg svona mini festival haldin á þessum tíma líka. Við Erin vinkona skelltum okkur á leiksýningu á föstudaginn, verkið hét "My Name is Rachel Corrie" og var í leikstjórn Alan Rickman leikara (Professor Snape fyrir ykkur sem eruð með lélegt leikaraminni). Verkið byggir á dagbókarfærslum Rachelar og tölvupóstsamskiptum hennar við fjölskyldu sína. Hún lét lífið aðeins 23 ára gömul við friðsamleg mótmæli í Palestínu en jarðýtu var keyrt yfir hana. Þetta var virkilega mögnuð sýning - 90 mínútna frábær einleikur.
Eftir sýninguna fórum við á veitingastaðinn Café Marlayne - það eru reyndar tveir í Edinborg, einn í Thistle Street og annar í Old Fishmarket Close sem liggur niður af Royal Mile sem við fórum á. Við fengum okkur lífrænan kjúkling með "blóðmör", hörpuskel, aspargus og rósmarín dressingu sem var snilldargott.
Eftir matinn röltum við um bæinn enda allt troðfullt af fólki og við skelltum okkur á The Jazzbar þar sem við sáum Freddie King Quartet með Frank Perowsky saxófónleikara, Freddie er svona "scat" söngvari og með alveg geggjaða rödd. Síðan tóku við fönkbandið Sorensen Soul Workout frá New York og þeir voru mjög fínir.
---
núna er bara vika í að krakkarnir komi og minna en það jafnvel - ofboðslega hlakka ég til.

