það haustar...

...greinilega haust í loftinu þó enn sé ágústmánuður aðeins rétt að verða hálfnaður. Vindurinn blæs kaldari og laufið er farið að láta á sjá. Börnin koma á morgun og Óðinn byrjar í skólanum strax á miðvikudaginn hér úti og Unnur heldur aftur heim mánudaginn 21. ágúst og byrjar daginn eftir í 8. bekk í Hlíðaskóla. Það er ótrúlegt að litla barnið mitt sé að fara að fermast næsta vor. Augljóslega er hún ekki neitt smábarn lengur, ekki einu sinni krakki því þann 11. sept næstkomandi verður hún formlega táningur þar sem hún verður þá þrettán.

Ég fór í gærkvöld út með Erin. Við fórum að sjá Late 'n' live sem hófst klukkan 1am og stóð yfir í fjórar klukkustundir. Fyrstu tvo tímana var stand-up og er óhætt að segja að það hafi reynt á hláturkútinn í minni þar sem lá við gráti nokkrum sinnum en klukkan þrjú tók við frábært band sem samanstóð af 12-14 manns (náði ekki alveg að sjá nákvæma tölu) og spilaði það sambland af salsa, hiphop og þesslags tónlist. Rétt fyrir fjögur gerðist ég samt skynsöm og dró Erin með mér út þar sem ég var með daginn í dag þéttskipaðan í undirbúning fyrir komu barna og eins kom Linda elskan með bumbuna sína í heimsókn (það styttist óðfluga í að sá bumbubúi láti sjá sig). Hinsvegar rákumst við á vini Erinar fyrir utan Teviot Place þar sem við vorum og var ég því ekki komin í ból fyrr en upp úr hálf fimm sem gaf mér fimm tíma svefn því Liz (my landlady) kom um hálfellefu og fór með mig í Sainsburys að versla. Dagurinn fór svo í að ganga frá herbergi prinsins og að þvo og strauja og ryksuga og þið vitið svona skemmtilegustu verk í heimi - húsverkin.

Ég er orðin heldur lúin núna og verð að leggjast í hvílu bráðlega þar sem ég verð að ná eitt stykki lest til Glasgow klukkan átta þar sem lestin gengur bara á klst fresti á sunnudagsmorgnum og ætla ég að ganga á lestarstöðina og því ekki seinna vænna að hypja sig út úr húsi en 7.25 circa ;) ægilega fínt að fá sér morgungöngu :)

Share this