Hafa feministar ekki kynhvöt?

Ég sá leikrit í uppfærslu Alan Rickman í sumar og las í tengslum við það viðtal við hann í Scotland on Sunday, þar er fjallað um hversu heitt kyntröll Alan Rickman er og um aðdáendabréf til hans frá konum, ein segir "I am a feminist, so I don't understand how you can have this effect on me..." og hann klikkir út með að segja að svona bréf séu algeng.

Ég er feministi svo lengi sem það þýðir að ég trúi á jafnrétti kynjanna, sömu laun fyrir sömu vinnu og allt það en ég trúi líka að ég eigi rétt á minni kynhvöt (sumsé finnast karlmenn sexý og finna eitthvað kvikna við að horfa á þá) og að ég eigi rétt á að vera kona, að klæða mig kvenlega, nota snyrtivörur OG á sama tíma vera tekin alvarlega.

Eða er ég alveg að misskilja þetta má ég ekki lengur taka myndir bara af því að Robert Downey Jr. er í þeim vegna þess að ég er feministi.... komment takk!

Share this