Komin á kagga....
já dömur og herra, ég hef eftir 414 daga dvöl (rétt um 14 mánuðir sko) keypt mér bíl. Síðustu 414 daga höfum við gengið Edinborg þvera og endilanga og einstaka sinnum tekið strætó eða leigubíl ;) en nú fannst mér tími til komin að sjá meira en það sem er í göngufjarlægð. Nú svo er Linda beib alveg að fara að eiga og maður verður að geta brunað að sjá "prinsinn" (prinsinn kom upp í hugann svo ég læt það með en við höldum nú samt sterklega að þetta sé prinsessa nema það sé bara óskhyggja og Siggu Kling að kenna)þegar okkur hentar og getum farið í stóru búðirnar í úthverfunum án þess að múta vinum með hádegismat og öðru slíku :) En svo var þetta sniðugt líka þar sem ég fékk bílinn á frábærum kjörum (var ekkert að fara að kaupa bíl bara stóðst ekki mátið að kaupa bíl á 500 pund). OG svo er hann merktur Íslandi líka sem er geggjað!!
Stýrið er vinstra megin svo ég þarf ekki bæði að læra að skipta um gír með vinstri OG aka vinstra megin sem er flott - svo er bara að hugsa til vinstri þegar maður keyrir. Hins vegar er ég búin að búa hérna svo lengi að mér finnst það eiginlega eðlilegra að keyra vinstra megin en hægra megin... svo eins gott að passa sig þegar ég kem heim í okt. En sumsé fákurinn er af gerðinni Fiat Punto '95 og lítur asskoti vel út... hvítur (hmmm hef átt fleiri litla hvíta bíla, td. Suzuki Swift sem ég átti frá 95/6-2000 og Daihatsu Charade sem ég átti 94-5/6 ef ég er að muna þetta rétt) svo þetta er fínt.
Það fylgja hérna myndir með en vegna þess að það er bæði myrkur og létt þoka úti þá eru þær ekki sem bestar (svo er ég heldur ekki nógu ánægð með myndavélina... finnst hún aldrei hafa tekið myndir almennilega í fókus..) ætti kannski að tala við Canon útaf þessu. Eða læra á myndavélina :)
Eníhú

