HALLOWEEN

myndasíða hér.... hallóvín

Hin keltneska hátíð sem dregur nafn sitt af all saints eve er í dag. Við Óðinn keyptum grasker á sunnudaginn í athugið ekki súpermarkaðnum ASDA-Walmart heldur Hypermarkaðinum eins og stendur á skilti þar rétt hjá. Eníhú...
við komum heim í dag og skófluðum úr blessuðu graskerinu og bjuggum til svona spúkí grasker lukt og svo notaði ég innvolsið og bjó til graskerssúpu eftir uppskrift úr Sollu Smörtu bókinni (aka Grænn kostur Hagkaupa). Súpan var afskaplega góð þó Óðinn hafi ekki alveg kunnað að meta hana.
Nú er Óðinn í stuði og langar pínu út að gera svona "trick or treat" dæmi sem í raun og veru er samkvæmt skosku hefðinni líkt því sem gert er á Íslandi og heitir geysing ef ég er að skrifa það rétt en í því felst að börnin verða að syngja eða segja brandara eða performa á einhvern hátt til að eiga nammið skilið. Við förum út eftir smá og leyfum honum að banka hjá þeim sem við þekkjum í nágrenninu...
fréttaflutningurinn er svakalegur vegna þessarar hátíðar þar sem fólk er farið að óttast "anti-social behaviour" og að eldri krakkar/táningar noti tækifærið til að grýta hús með eggjum og svo framvegis. Ég lenti nú einmitt í því í fyrra að fá egg inn um dyrnar og verð að segja að ég er ekki sérlega spennt fyrir því að lenda í því aftur. En sem betur fer er nú meira um að þetta sé gaman og svona ...

Share this