í fréttum er þetta helst....
Það er kalt í Edinborg en fallegt. Eitt merki kuldans er tíðari ummerki spendýrs af músaætt sem sækir inn í húsakynni fólks til þess að leita sér matar.
Við Óðinn vorum í sukkstuði á mánudagskvöld og snæddum nachos með osti* með hinu 'eðal' sjónvarsefni Amazing Race sem sonurinn tilkynnti mér að væri hans uppáhalds þáttur!!!** Allavega, eitthvað fór nú niður á teppið að ég tel þar sem daginn eftir (í gær)var að finna talsvert magn af músaskít á teppinu nærri þar sem við sátum. Ég að sjálfsögðu orðin þessu þrælvön og kippi mér ekki upp við svona lagað lengur svo þetta var bara þrifið upp og stofan 'húveruð'. Áðan var ég svo að setja í þvottavél (afar áhugavert ég veit) og þá rak ég augun í örlítið af þessum litlu brúnu líka. Inni í 'scullery' er ég líka með ísskápinn og því hef ég haft þar lítið box með músaeitri sem ég flutti með mér af 117 og sá ég nokkur ummerki þess einnig að mús/mýs*** hefðu snætt eitrið og vakti það hjá mér smá samviskubit**** en líka ótta við að finna nú einhverja rotnunarfýlu næstu daga.*****
Nú ég er á lokasprettinum í ritgerðarskrifum. Stefnan er að þetta verði allt búið fyrir jól. Hefði að sjálfsögðu viljað vera löngu búin en þegar maður er að kenna eitt stykki námskeið í fjarnámi og veita aðstoð í tölvuveri hér 6 tíma á viku þá er fljótt að sneiðast af tímanum auk þess sem ég sinni syninum að sjálfsögðu afbragðsvel.
Það hefur enn ekki komið niður eitt einasta snjókorn en fyrir sléttu ári síðan (á föstudaginn kemur) þá snjóaði á okkur í fyrsta sinn þann veturinn. Man þetta svo afbragðsvel því pabbi var hjá okkur í heimsókn
. Þessi mynd var einmitt tekin þá. Talandi um gestakomur. Má ég minna á að það er gaman að fara til útlanda að versla fyrir jólin og hjá mér er pláss wink wink...
Og talandi um jólin. Ég mun koma heim í jólafrí. Íris elskan hefur gerst svo góð að lána mér slotið sitt þar sem hún verður stödd á Tenerife um jólin, verst að við náum ekki að sjást þar sem hún fer daginn áður en ég kem og ég fer morguninn daginn sem hún kemur. En dagsetningarnar eru sumsé 22. des - 4. jan.
Enn er ekkert komið á hreint um heimflutninga. Finnst það ekki par spennandi að flytja heim í lok jan eða byrjun feb svona veðurfarslega séð, svo er ástandið heima náttúrulega alveg fáránlegt. Veit ekki hvernig ég á að fara að því að finna húsnæði... til að kaupa húsnæði sem hentar litlu fjölskyldunni minni stærðarlega séð er verið að tala um svona 20 milj. og þegar maður á 'next to no money' þá þýðir það megnið í lán og afborganir uppá sirka 100-120 þús. Svo kemur auðvitað allt annað oná. EN og þetta er stórt EN það er ekkert betra að leigja. Sem dæmi þá er til leigu 69 fm. 3 herb. íbúð í Skipholti (aðeins 2 bedr.) á 118 þúsund!!! Skrifa nú bara eins og Unnur *wtf*. En ég held að við séum nú alveg komin með nóg þannig lagað séð og tilbúin að snúa aftur á klakann og verður það alveg örugglega í síðasta lagi í sumar. Fer allt eftir vinnumálum og húsnæðismálum að sjálfsögðu.
Man svo sem ekki mikið meira til að 'reporta' svo ég held ég snúi mér að skrifum um notkun upplýsingatækni í skólastarfi.
*dreifir nachos/doritos á disk og setur ostsneiðar yfir og hitar í örbylgju í 1 mín. gott að skera rauða papriku og dreifa yfir líka - tek fram að þetta er að sjálfsögðu alger fitubomba enda alls ekki oft í boði.
** þar sem ég hef ekki verið áskrifandi að Stöð 2 síðan um aldamót þá spurði ég hann hvar hann hefði séð þennan þátt og jú það var einhverntíma hjá Döggus sys (líklega fyrir löngu síðan)
*** einhver sagði einusinni að þar sem þú sérð eina mús eru pottþétt átta í leyni
****ég er þess næsta fullviss að ég hafi verið kaþólsk í síðasta lífi því ég þjáist af krónísku samviskubiti
*****sko það sem gerist er að mýsnar éta eitrið fara svo undir gólfborðin eða inní veggina og drepast þar. Þá gýs upp nokkur lykt sem er ekki mjög spennandi að hafa en hún hverfur á nokkrum dögum því líkin þorna svo hratt upp. Eruð þið ekki ánægð að ég sagði ykkur frá þessu
OG KOMMENTA SVO******
******til þess að kommenta þarf að 'registera' sig og þá fæ ég póst um að viðkomandi (þú vonandi) viljir fá aðgang að blogginu og þá segi ég ok og þá getur þú kommentað. Þarf bara að registar einu sinni til að geta kommentað hvenær sem er...

