MSc !!
Jæja, í dag skilaði ég inn lokaverkefninu. Óneitanlega mikill léttir. Ég þarf svo að verja ritgerðina einhvern tíma síðustu vikuna mína hérna og vonandi mun það bara ganga vel enda ekki ástæða til að ætla annað. Nú þarf ég að snúa mér að því að hugsa um nemendur mína og huga að því að flytja heim... GVÖÐ ég er sko farin að hlakka til :) bara 20 dagar en þangað til ætla ég að njóta borgarinnar sem ég er í - hún er svo frábær!!
Litli maðurinn er veikur í dag... er svo heppin að eiga góða að sem aðstoðuðu mig við að koma ritgerðinni inn, Igor prentaði hana út á laser og kom með hana upp í skóla í dag og Sigga Dóra kom og sat hjá Óðni meðan ég fór og lét binda inn og skilaði. Reyndar kom Katrín í morgun og ætlaði að redda mér en þá var Igor ekki kominn upp í skóla með útprentið fyrir mig ... fór í staðinn í búðina og keypti kók og snakk handa sjúklingnum. Hann hefur ekki mikla matarlyst þessi elska.
Verðum heima á morgun líka svo hann nái þessu nú er sér.

