Út að borða
Hélt ég yrði ekki eldri á laugardagsmorguninn þar sem mér leið svo illa en viti menn ég varð hitalaus með deginum og skellti mér út að borða um kvöldið með Siggu Dóru og Línu. Við fórum á japanskan veitingastað Bonsai
sem var mjög góður og ekki var hann dýr. Við kíktum svo á pöbba á eftir og enduðum á Greyfriar's Bobby bar sem er með Tartan gólfteppi. Mjög smekklegt. Ég var nú svo hálf lufsuleg í nótt og morgun en reif mig upp og fór með Óðin og Ian vin hans í Dynamic Earth þar sem við kynntumst sögu jarðarinnar. Var alveg ágætt en Óðinn var pínu hræddur því það var hristingur og hávaði og læti en mér fannst þetta kannski ekki eins tilkomumikið og ég hafð væntingar um.
Svo fór ég aftur út að borða í kvöld á Jamaiskan (hef ekki hugmynd um það hvernig maður segir þetta) veitingastað, sem mér skilst að sé sá eini sinnar tegundar í Skotlandi. Mjög fínn matur, tilefnið var afmæli Erinar vinkonu og það var aldeilis fjölþjóðlegur hópur samankominn við borðið, ég frá Íslandi, Erin frá Englandi, tvær frá Spáni, einn frá Jamaíka, tvær pólskar, tvær frá Þýskalandi og önnur þeirra Kúrdi í þokkabót. Vantaði bara skota.

