Jæja.
Submitted by khh on 3 March, 2007 - 02:43
sko sálin er núna loksins komin til Íslands og ég er mjög sátt bara. ánægð með vinnuna, íbúðin er fín en þetta er bara tímabundið heimili og því varla til þess að settlast of vel inn í. þarf að fara að leita að nýju húsnæði því bráðlega. byrja á því strax eftir ferminguna hennar Unnar sem er 1. apríl.
var boðið á Grillið í kvöld til að fagna nýju gráðunni. alger snilld og frábært útsýni. já ég veit að ég er næstum orðin 34 ára og þetta var fyrsta skiptið sem ég borða á Grillinu. takk fyrir mig.
enívei komin tími til að lúlla þó fyrr hefði verið.

