Sjúkt ástand...
okei. er farin að upplifa þær systur samviskubit og sektarkennd. kannski samviskubit aðallega þar sem ég hef litið getað sinnt vinnunni minni síðustu tvær vikur. alveg týpískt samt byrjunarvesen hjá mér, man ekki til þess að hafið störf eða nám nokkursstaðar án þess. nú byrjaði það á því að ég flaug á hausinn í síðustu viku á þriðjudeginum um hádegi, reyndar þoldi að klára daginn og mætti svo í vinnu á miðvikudeginum en var svo kvalin í vinstri öxlinni að ég þorði ekki annað en að láta líta á það og fór dagurinn í það eftir kl.11. Á mánudaginn var heyrði ég í Jónasi um hádegi og var þá Óðinn veikur hjá honum og höfðu þau pantað tíma hjá lækni. Ég hætti því upp úr tvö og fór með drenginn. Í ljós kom að hann var með streptókokka og fékk lyf við því. Hann er samt búinn að vera veikur alla vikuna þessi elska en Jónas hafði hann í dag svo ég kæmist á námskeið í tengslum við vinnuna. Sótti svo Óðin áðan og er hann enn með smá hitavelgju auk þess að hann er með sýkingu í munninum, bólu undir auganum og sár í nefinu. Litla skinnið.
SEM BETUR FER GET ÉG EITTHVAÐ UNNIÐ AÐ HEIMAN.
Annað er það í fréttum að nú styttist óðum í fermingu Unnar Helgu en hún mun fermast 1sta apríl kl.13.30 og verður opið hús hér heima frá klukkan 16.00-19.00 sama dag.

