ávalt vs. ávallt
Submitted by khh on 29 June, 2007 - 13:08
Í þessari frétt á mbl.is segir: "Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, sagði atburðinn í nótt minna Breta á að landið eigi ávalt yfir höfði sér hættu á hryðjuverkum og alltaf þyrfti að vera á verði." Að vera ávalur felur í sér að vera bungulaga og er tildæmis talað um að hinn eða þessi sé ávalur þegar átt er við að manneskjan sé feitlagin. Rétt hefði verið í þessu tilfelli að nota rétta mynd af orðinu ávallt sem þýðir aftur að eitthvað geti alltaf gerst eða ætíð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég sé þetta orð skrifað vitlaust hjá mbl.is.

