Komin hringinn

Ár liðið síðan við fluttum heim.
Heilt ár, einn hringur, eins og maður hafi aldrei farið. Nema bara, fullt af nýjum vinum sem heita erlendum nöfnum og sumir íslenskum.

Er lasin. Sem sem er svo sem ágætt. Betra núna en seinna. Er að fara til New York eftir rúmar 2 vikur. Frí í skólanum hjá krökkunum. Óðinn var svo heppinn að fá að fara í sveitina til Svövu frænku og unir sér víst ofboðslega vel þar með frændum sínum Arnari Breka og Grími Geir.
Enda í góðum höndum.

Afhverju er janúar og febrúar svona fitandi mánuðir?!

Share this