Maí að verða liðinn

Mikið hefur gengið á í afmælisboðum undanfarnar vikur og hefur það að sjálfsögðu bara verið gaman. Dagga systir átti afmæli í dag, Ástþór Smári stjúpsonur hennar í fyrradag, þar á undan Óðinn minn þann 20. og Íris vinkona, Kristín vinkona var 19. maí og ýmsir aðrir auk mín og pabba að sjálfsögðu. Nú svo á Sigga Dóra afmæli 29. maí og Reynir frændi 31. maí. Ekkert nema naut og tvíburar í kringum mig.

Ég lauk störfum hjá setrinu á föstudaginn var (þvílíkur léttir) og hef störf hjá borginni á miðvikudaginn kemur. Ég tók einnig þá ákvörðun að hætta að kenna við HÍ sem stundakennari og einbeita mér að einni vinnu og gefa mér sjálfri kannski færi á að eiga eitthvað líf utan vinnu og barnauppeldis.

Skrýtnar en góðar tilfinningar fylgdu í kjölfarið og líður varla sá dagur núna án þess að ég upplifi einhverskonar létti.

Nú ef ég get hætt á kolvetnafylleríi síðustu daga þá mun ég líklegast upplifa annarskonar létti líka mjög fljótlega ;)

Share this