Konudagur

Til hamingju með daginn konur!

Gott er að þorranum er lokið og Góan tekin við, aðeins tveir mánuðir eftir nú af vetri þ.e. Góan og Einmánuður og svo kemur sumarið með henni Hörpu í lok apríl. Vonandi að hún færi okkur meiri sól og yl í veðri og líka bjartari tíma.

Þetta hefur verið erfiður vetur fyrir þjóðarsálina og það verður spennandi að sjá hvað gerist í kosningum í vor og hvernig mun ganga að snúa hlutunum aftur á betri veg í íslensku atvinnulífi.

Við getum þetta allt með jákvæðu hugarfari og trú á að við eigum aðeins gott skilið.

Is a woman er núna Is a yes woman :)

Share this