Skrif
Ég lýsti því yfir að með breyttu útliti myndi færslum hér fjölga og var einn liður í því birting örsögunnar minnar hér á undan. Þessa sögu skrifaði ég fyrir ári síðan eftir að hafa setið námskeið sem heitir Skapandi skrif og er kennt af Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi.
Ég þorði samt ekki að birta hana fyrr en nú því hún er í óneitanlega smá persónuleg þó hún sé skáldskapur. Ég ætla að halda áfram að stíga út fyrir þægindahring minn og birta efni sem ég hef skrifað áður og eins efni sem ég mun skrifa vonandi á framhaldsnámskeiðinu hjá Þorvaldi núna í mars.
Ég skellti mér líka á skauta á sunnudaginn var með Óðni og Döggu systur, hennar strákum og mömmu. Hef ekki farið á skauta síðan ég var unglingur. Ég þorði ekki annað en að fara fyrstu tvo hringina með grind að styðja mig við en sleppti henni svo þegar ég sá að systir mín stóð sig svo vel án grindar og náði ég að skauta nokkra hringi og það án þess að detta.
Þetta var rosalega gaman. Ég náði ekki neinum svakalegum hraða en er viss um að ná betri tökum á þessu ef ég bara held áfram að fara með Óðinn þar sem hann hefur líka mjög gaman af því að skauta.
Þá er ég að aðstoða á Dale Carnegie námskeiði fyrir unglinga þessar vikurnar og er það mjög góð reynsla og rifjast upp allt sem ég lærði þegar ég fór sjálf í gegnum námskeiðið haustið 2001. Nóg að gera semsagt!

