is a woman

Ég man ekki hvort ég hef áður útskýrt hvaðan titillinn á blogginum er kominn. Ég hugsa að ég hafi allavega ekki útskýrt það nákvæmlega.

Fyrir um sjö árum síðan heyrði ég í fyrsta skipti í hljómsveit sem ber nafnið Lambchop. Platan hét Is a woman og á plötunni var líka lagið Is a woman. Gullfallegt.

Á þessum tíma var ég á talsverðum tímamótum. Hafði skilið nokkrum mánuðum áður og var að fóta mig aftur, átta mig á því hver ég var. Að ég væri fyrst og fremst kona en ekki bara móðir, sambýliskona, bóksölukona, dóttir, systir og það allt saman.

Ég tók því titil plötunnar og gerði að mínum. Er kona. Is a woman.

Stundum á ég það til að nota líka titilinn Is a teacher woman í status á Facebook eða á MSNinu (þá þegar ég er að sinna kúrsinum mínum) en þá er það blöndun þessarar tilvísunar í Is a woman titilinn og í titil bókar eftir Frank McCourt sem skrifaði Angela's Ashes, en framhald þeirrar bókar sem er sjálfsævisaga hans ber heitið Teacher Man.

Share this