Fögur fyrirheit en tómt í höfðinu
Ég setti mér það markmið á DC að skrifa eitthvað á bloggið mitt á hverjum sunnudegi en er eitthvað tóm í dag.
Ég þarf kannski að endurskoða þetta markmið mitt ... en ég byrja reyndar á námskeiði 24. mars í skapandi skrifum og kannski opnast hausinn á mér þá.
Það er kannski ekki endilega nauðsynlegt fyrir mig að birta það sem ég skálda hér þó ég hafi birt þetta ársgamla efni mitt um daginn þá var það ákveðin æfing hjá mér í að stíga inn í óttann við að leyfa öðrum að lesa eitthvað sem ég hef samið.
Það að skrifa eitthvað hér þó það sé bara ómerkilegt þvaður um daginn og veginn er alltaf æfing í að skrifa.
Ég nenni þó alls ekki að skrifa um einhverja pólitík eða ástandið á Íslandi. Ég vil bara hugsa jákvætt og skrifa um jákvæða hluti :) eins og það að ég er að kynnast fullt af nýju fólki þessa dagana, svo ætla ég að skella mér til London eftir nokkrar vikur og lífið er bara rosalega fínt.
Það er nefnilega ansi góð setningin "being happy is a state of mind".

