börn, peningar og umgengni

Í dag heyrði ég spjallað við Dögg Pálsdóttur á Bylgjunni (held hún sé örugglega lögfræðingur) um meðlagsgreiðslur, umgengni og þess háttar.

Það kom fram í þessu viðtali að hægt sé að sækja tvöfalt meðlag til þess einstaklings sem barnið/börnin hefur ekki lögheimili hjá ef tekjurnar eru háar eða um 370.000 brúttó (sem er nú ekki sérlega háar tekjur þannig). Þá er ekki tekið tillit til skuldastöðu einstaklingsins og greiðslubyrði hans né þess hversu miklum tíma barnið/börnin eyðir hjá honum.

Semsagt foreldri sem er ekki með lögheimili barnsins getur þurft að borga tvöfalt meðlag auk þess að barnið sé hjá því til jafns við hitt foreldrið sem auðvitað fylgir heilmikill kostnaður.

En eins getur foreldri sem ekki fær að umgangast barnið sitt þurft að borga allan þennan pening líka.

Ég er einstæð móðir með tvö börn og jú vá ég myndi gjarna vilja fá meiri pening en... ég sé ekki jafnréttið í þessu.

Dögg sjálf nefndi að þar sem foreldrar færu með sameiginlegt forræði og að barnið væri viku og viku til skiptist væri jafnvel ekki eðlilegt að annar aðilinn greiddi hinum meðlag.

Ég er að mörgu leyti sammála þessu.

EN það er margt sem þarf að gæta að og í fyrsta lagi þarf að tryggja rétt beggja foreldra. Eins og er telst barn ekki hluti af fjölskyldu nema það eigi lögheimili hjá henni. Það er, sonur minn er ekki tryggður sem hluti af fjölskyldu föður síns (samt erum við með sameiginlegt forræði og hann eyðír meiri og meiri tíma hjá honum).

Þar sem barn getur ekki haft tvö lögheimili þá geta báðir foreldrar ekki fengið barnabætur. Aðeins það foreldri sem barnið býr hjá lögum samkvæmt hlýtur þessar bætur.

Ef hægt væri að veita barni réttinn til þess að hafa tvö lögheimili (A og B)þá gætu báðir foreldrar fengið bætur (þá 50% hvort)með barninu. Hvorugt greiddi meðlag og reikningar fyrir tómstundum, frístundaheimilum og þess háttar væri skipt á milli.

EN þá þarf samkomulagið að vera gott og allir að standa sig sem því miður er ekki alltaf raunin. Það eru mjög margir fletir á þessu máli og mörg flækjustig.

Share this