Comic relief
Var að koma heim rétt áðan, rosalega þreytt eftir öflugan dag. Mikið að gerast og margt að hugsa um. Krakkarnir í Dale Carnegie voru að deila í dag með hvort öðru og okkur lífslexíu, atvikum sem hafa haft áhrif á þau og þau þurft að læra af. Oft mjög harðar lexíur.
Kveikti svo á sjónvarpinu og þá er verið að sýna Comic relief á BBC1 og í ár er verið að safna vegna malaríu í Afríku.
Hrikalegt hvað mörg börn þurfa að deyja daglega af völdum sjúkdóms sem hægt væri að verjast ef til væru net og fólk hefði efni á lyfjum. Ótrúlega erum við heppin hér á Íslandi. Þó auðvitað gangi ýmislegt á þá búum við svo mikið öryggi sér í lagi þegar litið er til sjúkdóma.
Ætli við séum nógu þakklát dags daglega?

