Minning um hvern?
Mamma benti mér á þessa kostulegu minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu í dag 18. mars 2009.
"Ómögulegt virðist að komast hjá því að skrifa eftir Hákon Aðalsteinsson, ljóðskáld. Líkt og það var ómögulegt að rekast ekki á hann óbeint á síðustu áratugum. Segja má að það hafi verið rithöfundastéttin sem tengdi okkur saman. Þannig þekkti mamma, Amalía Líndal rithöfundur, Svövu Jakobsdóttur, sem var kona bróður Hákonar, Jóns Hnefils. Síðan kynntist ég Jóni Hnefli í MH sem nemandi, og síðar er ég kenndi í Menntaskólanum á Egilsstöðum; með syni Jóns, Kristjáni Jóhanni Jónssyni, rithöfundi. Jóni Hnefli kynntist ég svo betur í kennsluréttindanámi mínu við HÍ, og í Félagi þjóðfræðinga á Íslandi. Seinna gekk ég í Rithöfundasamband Íslands, og kynntist þar bræðrum hans Stefáni og Ragnari. Loks sendi ég Hákoni ljóð til birtingar í ljóðasafni skálda á Austurlandi. Ég hafði mikið álit á vísnagerð Hákonar. Þótti mér með ólíkindum að enn væru menn uppi á Íslandi sem væru að yrkja merkilega listrænan kveðskap með þeim hætti; svo minnti á Bólu-Hjálmar frekar en Kristján frá Djúpalæk. Gaf ég þetta í skyn við ungskáld eitt frá Egilsstöðum og ME, sem ég átti nýlega ljóðabókaskipti við hér í Reykjavík.
Ég vil votta Hákoni virðingu mína með því að birta eitt kvæði úr elleftu ljóðabók minni, Kvæðaljóðum og sögum (2008), en þar freista ég þess enn og aftur að tjá mig í bundnu ljóðformi. Einnig hefur heimur Hákonar á Austurlandi gengið í endurnýjun lífdaga fyrir mér í tólftu bók minni, sem er minningabók og heitir Eftirþankar skálds (2009), en í henni fjalla ég um kennslutíð mína á Egilsstöðum, og náttúruljóð mín þaðan. Skáldskapur Hákonar Aðalsteinssonar mun lifa. Kvæðið mitt heitir Papar og landnámsmenn II, og fer það hér á eftir.
Hjörleifur í húmi fer,
og á næsta hólma vér.
Sævi gráum á hann siglir,
þrælum flúnum eftir skyggnist.
Einsetumunkar frá Eire
ennþá á Thule hér eiri.
Bylur ei lengur í bjöllum,
skaka ei þorum vor böglum.
Írafár nú ýtir á
burtu hlaupna Íra þá;
munu bráðum fyrir björg
bana sér við fugla görg.
Tryggvi V. Líndal."

