Um unglinga, götun og veðurfar
Unnur Helga dóttir mín hefur undanfarnar vikur æft stíft og nú síðustu viku komið fram í söngleiknum Það er að koma sem sýndur er í Hlíðaskóla. Þar leikur hún "gellu" sem er ekki mikið mál fyrir hana þar sem hún er orðin þvílík gella sjálf.
Hún kom heim á föstudagskvöldið og hafði þá gatað á sér naflann án leyfis móðurinnar og fannst eðlilegast af öllu að hafa gert það þannig þar sem ég hefði hvort eð er sagt nei eða látið hana fara á stofu og hún tímdi ekki að borga fyrir þetta.
Það var semsagt einhver úr vinahópnum sem sá um götunina... en hefur víst gert þetta rosalega oft og þær notuðu rétta nál og sótthreinsuðu og allt... ég var að sjálfsögðu með óþarfa áhyggjur, "helduru að ég viti ekki hvað ég er að gera!!"
Veðrið um helgina hefur verið stórskemmtilegt, það er yndislegt að upplifa vorið og veturinn samtímis.

