1995 flashback

Var að horfa á einhverja auglýsingu í sjónvarpinu þar sem sást í Iðnskólann í Reykjavík og mundi þá allt í einu eftir degi einum sumarið 1995. Þá var ég í sumarskóla í Iðnskólanum sem var í boði fyrir atvinnulausa og boðið var upp á gæslu fyrir börn þeirra sem skólann sóttu.

Unnur Helga er þvi þarna ekki orðin 2 ára enda fædd að hausti og fyrsta daginn sem ég kom með krúttið með mér og ákvað að prófa gæsluna gekk allt vel eða þar til ég kom að sækja hana. Þá var barnið nefnilega horfið!! Ég fékk "hland fyrir hjartað" eins og sagt er og æddi út að leita að barninu og fann hana á harðahlaupum niður Frakkastíginn. Litli prakkarinn var aldeilis ánægður með sig :)

Ég þakka bara fyrir það að hafa ekki komið seinna að sækja hana því það hafði enginn áttað sig á því að hún var horfin fyrr en ég kom.

Unnur á það enn til að prakkarast við móður sína þó ég fái æ sjaldnar "hland fyrir hjartað" útaf henni enda nálgast 16 ára afmælisdagurinn óðfluga.

Í öðrum fréttum þá þurfti ég (æ mig auma) að fara snemma úr vinnunni í dag og taka á móti ungum manni frá Vodafone en tilgangurinn með komu hans var að tengja Vodafone þjónustuna alla við hið fagra ljósleiðarabox sem sett var upp í síðustu viku hjá mér.

Nú þar sem ég gat ekki unnið á meðan hann dundaði sér við að tengja og ég var ekki búin á því eftir langan vinnudag (enda klukkan bara 3) og veðrið yndislegt og þar fram eftir götunum þá lét ég loks verða af þvi sem ég hafði lengi ætlað mér eða að flytja skrifborðið úr stofunni inn í svefnherbergi og fína borðið frá langömmu fram í stofu og fyrst ég var nú farin af stað með húsgögn þá breytti ég fleiru í svefnherberginu, ma. legu rúmsins.

Gasalega fínt orðið hjá mér :) verður forvitnilegt að vita hvernig ég sef svo í nýju skipulagi!

Share this