áfengisneysla unglínga í framhaldsskólum

Nýlega birtust fréttir af rannsókn sem gerð var á áfengisneyslu unglínga og kom þar í ljós ef ég man rétt að áfengisneyslan eykst um 140% milli 10. bekkjar og 1. árs í framhaldsskóla. Vegna þessara niðurstaðna var rætt að banna þyrfti partý fyrir framhaldsskólaböllin, eins og það sé virkilega mögulegt!

Má ég leggja fram þá tillögu frekar að framhaldskólar sjái til þess að böllin séu haldin á skikkanlegum tímum. Mér þykir alger óþarfi að láta böllin ekki hefjast fyrr en kl. 22 eins og venjan er í dag þeim lýkur þá ekki fyrr en kl. 1 eftir miðnætti nú eða kl. 2 eins og Eplaball Kvennó um daginn. Þessi böll eru ávallt haldin á virkum dögum og mæting í skóla daginn eftir. Væri ekki heilbrigðara að láta böllin hefjast fyrr og láta þeim ljúka fyrir miðnætti.

Þetta virðst ekki vandamál í nágrannalöndum okkar en við erum auðvitað alveg sérstök í því að þurfa að fara seint að djamma og djamma fram á morgun.

Share this