Kanada
Þegar ég var 17 ára gömul þá skrapp ég til Kanada í hálft ár. Passaði þar börn og kynntist ýmsu fólki sem ég hef svo kynnst aftur með tilkomu "Facebook". Þetta var árið 1991. Dvölin stóð yfir frá 10. janúar, stuttu síðar hófst Persaflóastríðið. Ég snéri svo aftur heim í lok júní. Þessi ferð var sú fyrsta sem ég fór til Ameríku, dvaldi eina nótt á Long Island hjá þeim systu og Óla sem voru með þjónustu fyrir fólk sem þurfti að millilenda, daginn eftir flaug ég svo frá La Guardia til Toronto (millilenti eingöngu þar örstutt og kom bara á flugvöllinn) en flaug svo þaðan beint til Regina þar sem ég svo bjó.
Þremur árum seinna snéri ég aftur og heimsótti fólkið. Þá flaug ég beint til Winnipeg og gisti þar eina nótt á hóteli. Þetta var árið 1994.
Níu árum seinna fór ég svo til Kanada eina ferðina enn og fór til Vancouver í beinu flugi frá Íslandi, febrúar 2003. Yndisleg borg.
Nú er svo komið að því að ég ætla að halda til Kanada eina ferðina enn. Við Unnur dóttir mín ætlum að skella okkur í mæðgnaferð til Toronto seinni hluta maí og gista þar fimm nætur. Erum svo lukkulegar að hafa þar heimboð. Ég hlakka mikið til að sjá enn eina borgina í Kanada enda landið í miklu uppáhaldi og mun sjálfsagt alltaf vera.
Mig dreymir um að taka einhverntíma Road Trip þvert yfir Kanada og til baka í gegnum Bandaríkin. En það bíður betri tíma.
English version:
Canada here I come once again. This time Toronto will see me and my daughter. Very much looking forward to it.

