2010 flýgur áfram
Þetta ár hefur gjö
rsamlega flogið áfram enda endalaust nóg um að vera. Eftir pínu erfiða byrjun á árinu þá tók við ofboðslega góður tími. Ferð til Kanada í maí með Unni minni yndislegustu var mjög góð, við nutum Toronto og fórum í dagsferð og litum á fossana miklu. Niagara falls.
Versluðum mikið og áttum gæðastundir saman, nauðsynlegt á vorin þar sem hún hélt svo austur á Klaustur þar sem hún hefur unnið við afgreiðslustörf í Skaftárskála í sumar. Duglega stelpan.
Svo fékk ég þá flugu í höfuðið að sækja loks um nám sem mig hefur langað í alveg síðan ég kom heim að utan. MPM heitir það og er kennt við Endurmenntun HÍ en tilheyrir verk- og raun. MPM stendur fyrir Master in Project Management og er kennt meðfram vinnu. Verður strembið en án vafa skemmtilegt.
Þegar ég fór svo í sumarfrí þann 10. júlí skelltum við Óðinn okkur til Edinborgar en við skiptum á íbúð við

fólk þar. Íbúð og bíl. Ofboðslega sniðugt. Við vorum þar í tvær vikur og áttum stórgóðar stundir með vinum okkar þar. Gengum mikið og versluðum MIKIÐ. Öll fjölskyldan ætti því að vera vel klædd í vetur.
Þá stefni ég á þriðju helgarferðina norður yfir heiðar nú um verslunarmannahelgina.
Fer svo að vinna aftur í næstu viku og hlakka talsvert til. Sigga Dóra elskulegust fer að vinna í grenndinni svo ég sé nú fram á einhverja lönsja með henni svo kemur Unnur mín í bæinn eftir tæpan mánuð og hlakka ég mikið til að knúsa hana. Óðinn hefur verið hjá mér mikið í sumar en er nú farin í frí til pabba síns og verður hjá honum næstu vikurnar. Því ætla ég að nota tækifærið og halda áfram að dytta að hér heima. Losa út dót sem börnin eru vaxin upp úr og svo framvegis.

