Súpa
Eldaði súpu í dag fyrir matarboð. Fékk svo góða súpu um daginn hjá Siggu Dóru og vildi endilega prófa sjálf. Hér kemur uppskriftin eins og ég eldaði hana.
-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-
3 msk olía
nokkur hvítlauksrif skorin smátt
einn púrrulaukur skorin smátt
1 græn paprika
1 rauð paprika
1 gul paprika
allt svissað á pönnu og svo fært yfir í stóran pott.
2 msk Arabískar nætur (Pottagaldrar) á að vera Morocco krydd frá NOMU en var ekki til í Hagkaup svo prófaði þetta og var mjög gott.
1 dós rjómaostur settur úti í gumsið og látinn bráðna við vægan hita
1og 1/2 líter soðið vatn með slatta af kjúklingakrafti og grænmetiskrafti (ég nota Tasty sem er fljótandi)
1 flaska Heinz chili sósa (skilst að Heinz sé algerlega málið í þessa súpu)
2 msk Sweet Chili sósa
allt látið malla
1/2 l. matreiðslurjómi bætt út í og látið malla áfram
-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-
Níu nettar kjúklingabringur skornar í litla bita og steiktar upp úr smá olíu kryddað með salti og pipar og svo skellt út í súpuna.
Ég setti svo eina góða sæta kartöflu og nokkrar gulrætur líka og skreytii með ferskum kóríander úr eldhúsglugganum hjá mér.
-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-
Þessi súpa dugði 10 fullorðnum og fimm strákum á aldrinum 8-12 ára (þeir borðuðu misvel) flestir fengu sér einu sinni vel á diskinn og það var örlítið eftir. Hefði verið hægt að setja aðeins meira vatn til að gera meira úr súpunni var talað um 11/2 - 2L.
Ég bar þetta svo fram með tveimur stórum snittubrauðum og tveimur minni snittu hvítlauksbrauðum.
Þetta var rosa gott. Örugglega flott að gera bara rosa matarmikla grænmetissúpu úr þessu eða setja fisk í stað kjúklingsins.
Hún allavega býður upp á allskonar tilfæringar.

