Ábyrgð þolenda ofbeldis
Mikið hefur verið skrifað í netmiðlum um ummæli lögregluþjónsins á www.dv.is.
Ég tel mig skilja hvert hann er að fara í fyrri hluta umræddra ummæla þar sem hann segir :
„Það er líka annað í þessu að það er alltaf undir hverjum og einum komið að vera meðvitaður um það að ef þeir drekka mikið, taka lyf eða fíkniefni þá getur ýmislegt gerst. Vandamálið felst meðal annars í því að fólk leitar ekki inn á við og sér ekki að það er að setja sjálft sig í hættu með drykkju og dópneyslu."
Auðvitað er ábyrgðin alltaf nauðgarans en ég skil að með þessum orðum Björgvins sé hann að reyna að halda forvarnarræðu með því að benda á að manneskja í annarlegu ástandi er útsettari fyrir því að verða fyrir ofbeldi en allsgáð manneskja, þar sem auðveldara er að yfirbuga þá manneskja en edrú.
Þetta er alveg eins og mælt er með því konur séu ekki einar á ferli á næturnar og haldi sig nærri fólki ef þær eru einar á ferð. Ég til að mynda stytti mér aldrei leið yfir Klambratún á leið heim úr bænum heldur hélt mig á Snorrabraut (frekar en Rauðarárstíg sem er fáfarnari) og Miklubraut eins og ég gat á leið heim í Hlíðarnar. Það þýðir ekki að ég hefði verið ábyrg fyrir því að lenda í ofbeldi ef ég hefði gengið ein yfir Klambratúnið en ég hefði sett mig í óþarfa áhættuflokk.
Við getum sumsé gert ákveðna hluti til þess að minnka líkurnar á að verða fyrir ofbeldi.
Það er seinni hluti ummælanna sem eru alveg fyrir neðan allar hellur: "Oftar en ekki eru þessi mál tengd mikilli áfengisnotkun og ekki á ábyrgð neins nema viðkomandi sem er útsettur fyrir því að lenda í einhverjum vandræðum. Það er erfitt hvað það er algengt að fólk bendir alltaf á einhverja aðra og reynir að koma ábyrgðina yfir á þá. Fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér.“ Þetta er hrikalega illa orðað hjá manninum og kannski trúir hann því virkilega að konur beri ábyrgð á því að vera nauðgað.
Það er staðreynd að til eru menn sem nauðga konum (og körlum líka) og það sem við konur getum gert er jú að forðast hvað mest við getum að koma okkur í þær aðstæður að við liggjum vel fyrir höggi ef slíkir menn eiga leið hjá.

