Yndislegt -
Allt er frábært. Við erum að settla okkur inn í íbúðina og hverfið. Hér er allt svo yndislegt og veðrið er búið að vera dásamlegt. Krakkarnir una sér vel og við Unnur fengum póst í dag "parent/guardian of Unnar Hjaldottir" frá skólanum hennar. Hún er yfir sig ánægð yfir því að þeir breyttu nýverið reglunum um skólabúninga og nú er klæðnaður frjáls - með ákveðnum reglum samt. Semsagt bert hold á ekki að sjást, ekki vera í fötum með dónalegum orðum á og þess háttar. Þetta er til þess að ýta undir "their individuality". Hún er þokkalega sátt við það. Óðinn þarf samt að vera í skólabúning sem ég er ekki alveg með á hreinu ennþá hvernig er. Fæ vonandi upplýsingar um það fyrir helgi. Óðinn talar reglulega um það "þegar við áttum heima á Íslandi" eins og við séum búin að vera hér í mörg ár :) en hann er ánægður sem betur fer. Mamma er að upplifa borgina á sama hátt og ég, held hún sé bara ástfangin.
Ég er komin með nýja frábæra tölvu. Dell, Latitude D810. Ég er alveg sátt. Eina sem ég þarf að redda núna er wifi tengingu við broadbandið því routerinn minn virkar víst bara á ADSL tengingar. Hugsa að ég kaupi mér router sem er bæði cable/adsl compatible þannig að ég geti bara selt hinn routerinn á góðum prís jafnvel. Ef einhver hefur áhuga, en það kemur í ljós. Ég er bara mjög ánægð.

