Til hvers notum við félagsmiðla!?
Var að lesa grein um félagslega miðla og hvaða starfi þeir gegna fyrir fólk. Mjög áhugaverð pæling og fékk mig til að horfa inn á við. Hversvegna er ég svona opin út á við, með Facebook, Twitter, Google+, LinkedIn, blogg og fleira?
Ég sem nýt þess að vera heima í friði. Er það vegna þess að ég er félagslyndur einfari (eins og mamma mín orðaði það svo skemmtilega)? Eru félagsmiðlarnir ekki einmitt leiðin fyrir fólk eins og mig, svo og fólk sem er hreinlega félagslega einangrað, til þess að eiga samskipti við fólk; leið til þess að hafa rödd í samfélagi sem verður sífellt hraðara og "uppteknara"; leið til þess að byggja upp sjálfið (construction of self).
Hver er ég? Hvað líkar mér? Ég get séð það með því að skoða póstana mína, "lækin" mín og vini mína. Hvað finnst ykkur?

